| Svanhildur's profileFuglaPhotosBlogLists | Help |
|
September 28 GEFST UPP !!!!!!!!!!!!!!!!Er sko búin að gefast upp á bloggi hér, það tekur um klukkutíma að skrifa smáfærslu, og margir kvarta um, hve erfitt sé að commenta hjá mér (vá, er það vegna delluskrifa hjá mér, eða að þeir séu sammála, bíð spennt)
En allavega er búin að stofna aðra bloggsíðu hjá mbl (hvað annað), prufa þar.
Sjáumst og take care.
September 24 24.septemberÍ dag á minn elsti sonur afmæli, 27 ára, til hamingju Kalli minn.
Hann býr á Akureyri með sinni konu og 3 börnum, þau fluttu þangað um síðustu páska, og líkar bara vel (þau höfðu búið í Kópavogi síðustu ár) .
Fór í dekur, síðasta föstudag, hand-og-fótsnyrtingu.
Vorum að passa 2 hunda í júní, og konan gaf mér gjafabréf í þetta dekur fyrir pössunina.
Hafði aldrei prófað svona, svo mikil var tilhlökkunin, og, vá, æði, meiriháttar,yndislegt, æðislegt, man ekki fleiri lýsingarorð yfir þetta, en væri sko til í svona aftur. Takk Íris mín, skal alveg passa hundana þína aftur, fyrir svona unað.
Er á fullu í servéttu-límingum, og er búin að líma á 38 glerkrukkur, 4 niðursuðudósir, og 3 vínflöskur (tómar vínflöskur, takk fyrir ).
Held að nóg sé komið fyrir eldri börnin, en þá er litla-fólkið eftir.
Verð að hugsa og spekúléra.
Er búin að vera næstum klst. að pikka þetta, á mína tölvu, assgotans helgihvíti, hvar er þessi góði sveita-tölvu-vinur minn???? Eða, er MSN-bloggið að pissa-út??????
September 19 GLERKRUKKUR !!!!!!!!!Halló halló, mig vantar glerkrukkur.
Er að líma servéttur á glerkrukkur til jólagjafa, og vantar fleiri krukkur.
Var síðast að dútla við þetta, fyrir um 3 árum, svo hefur mig alltaf vantað límið, en fékk gott ráð í vikunni. Bara hræra saman trélím og vatni, og þá þetta fína servéttulím tilbúið.
Gaman gaman. September 16 Skítakuldi.Já hér snjóaði smá í gær, skítkalt, alltof snemmt fyrir svona hvíta-dauða (en það kalla ég snjóinn).
Fer bráðum að týna saman eitthvert timburdrasl og byggja yfir tröppurnar, svo assgoti kalt að reykja úti.
En það er ekki bara veðrið sem andar köldu, heldur líka höggormurinn sem læddi sér inn í okkar fjölskyldu-paradís, og eitrar út frá sér. Þó ég sé orðin 51 árs, kemur mér enn á óvart, hve fólk getur verið falskt og illt í sér. Hvað er hægt að gera í þessu ?
Í gærkvöldi buðu Nonni og Sessa okkur í mat, æðislegt, en þau komu heim frá Spáni fyrir 2 dögum.
Ég sá um köttinn þeirra, og sem betur fer, lifði hann það af. Í eftirrétt fengum við EÐLUVÍN, flaskan var sett á borðið, og í henni var lítil eðla, í alvöru. Þetta vín smakkaðist bara vel, sterkt en samt mjúkt.
Í gær kom svo Birna heim, en ég hafði verið að sjá um hennar 4 ketti síðustu 3 daga, og þeir lifa enn.
Svo núna sé ég bara um mína 2 hunda (manninn minn og hvolpinn Baltó).
Og þeir lifa enn
Eins og ég sagði frá í bloggi fyrir húsmæðraorlofið, þá verslaði ég útsaums-jólagjafir handa barnabörnum, hjá Helgu vinkonu (swídí), saumaði smá í Borgarnesi, en þegar hingað heim var komið, arkaði ég til Helgu og fékk að skila öllu, ÉG SÉ ANDSKOTANN EKKI NEITT. Var samt með sterkari gleraugun á nefinu, en allt kom fyrir ekki.
Síðustu 3 daga, hef ég verið uppi í föndurhorninu mínu, og hef reynt og reynt að föndra, eitthvað smá hefur fæðst, en mig vantar andann yfir mig.
Ronni fór á gæs í gær og í dag, og kom með 6 stykki í hús.´
Og í kvöld er loks gæsabringa í matinn, vonandi ekki seig. En það er mikið happdrætti með þessar gæsir, hvort þær eru seigar eður ei. Annað með endurnar, þær sko standa alltaf fyrir sínu, jammý.
Var að passa Kristel litlu, barnabarn mitt, í síðustu viku, og gekk það bara vel, eftir að hún fattaði, að ég réði hér, en ekki hún, hehehehe, en sú litla hefur mikið skap og vill ráða öllu, svo amman varð að setja upp ljótann svip og brýna röddina. (hmmmm, ætti kannski að prófa þetta við höggorminn).
Jæja elskurnar, mig langar að skrifa svo mikið mikið meira um höggorminn, en, þó ljótt sé frá að segja, þá vil ég frekar að fólk kynnist því, face to face, heldur en að ég sé að segja frá.
Take care.
September 10 Húsmæðraorlof.Tilraun 3, sit við Ronna tölvu. Fimmtudagur 30/8, þveginn þvottur, ryksugað og tekið til, hinu og þessu troðið í tösku (allt of mikið af hinu og þessu), mætt á flugvöllinn kl 17.00 og farið í loftið hálftíma seinna. Klukkutíma seinna er ég allt í einu stödd í Reykjavík, ótrúlegt, því það tekur um 5 tíma að keyra héðan. Mínar 2 systur eru það fyrsta sem ég sé, þegar ég kem úr flugvélinni, æðislegt. Þegar inn í STÓRU fugstöðina er komið, taka á móti mér systur mínar, og Sólveig, Atli og Veigar litli, gaman að sjá litla kall labba, En þau komu til að taka byssuna sem ég neyddist til að hafa með mér (var drulluhrædd um að vera stimlaður hryðjuverkakelling), sem ég reyndar er, en á öðrum sviðum. En út ég komst, og var leidd í nýja bílinn hennar Ingu systir, splunkunýr Volvo-jeppi, varla að ég þyrði að setjast inn í hann. Keyrt var af stað og ekki staðnæmst fyrr en í Kringlunni, þegar inn var komið, var mér skipað að velja mér afmælisgjöf frá Sillu systir, og fann ég mér þessa fínu rauðu golftreyju (ætla samt ekki að spila golf). Þá fór maginn að gaula hjá okkur systrum, og var þá stefnan tekin á matsölustað þarna innandyra þar sem dóttir Sillu-systir vinnur, og mikið gott borðað, eitthvað sem ég man ekki hvað heitir, enda er ég sveitamanneskja. Þá var Sillu-systir skutlað í vinnuna, alltaf nóg að gera hjá henni, unnið kvöld og helgar, og stefnan tekin á Borgarnes. Þangað komum við um 10-leytið um kvöldið, og tók Einar Trausti vel á móti mömmu sinni, og stuttu seinna mætti Jón Ingi (minn yngsti sonur, litla-barnið) og með Bounty, hundinn sem ég gaf honum fyrir um mánuði síðan. Bounty litli fagnaði mér vel, en við Ronni höfðum átt hann í rúm 2 ár, en þegar Jón Ingi var að fara seinna um kvöldið, og kom til að knúsa mig, (þá var hann kominn með Bounty í fangið), þá urraði Bounty á mig, vá skrýtið, en ég varð ánægð, vissi þá að Bounty er ánægður með sitt nýja heimili. Það er ég ánægð með. Á föstudegi kíkti ég í Bónus, Hagkaup og Lyfju (alltaf þarf maður að vera að leysa út einhver helv.....lyf), gaman að sjá mörg kunnugleg andlit, sem öll heilsuðu og brostu. Á laugardagskvöldinu skellti Einar sér á ball upp á Hvanneyri, og var það sko í lagi mín vegna, Jón Ingi duglegur að kíkja á mömmu sína, og svo hafði ég sko nóg að horfa á í tölvunni, ég meina Einar duglegur að downloda myndum og þáttum, sem ég hef ekki séð, svo það var ekki séns að mér gæti leiðst. Á sunnudeginum fékk ég bílinn lánaðann hjá Einari til að skreppa til Ingu systir, ekkert mál, en seinna um kvöldið, löngu eftir að ég var aftur kominn heim, skrapp Einar út, kom náfölur aftur heim, og spurði mig, hvort ég hefði rekið bílinn niður einhversstaðar, fyrr um daginn.Nei, ekki hafði það gerst. En bíllinn var bremsulaus. Bremsuvökvinn gusaðist út. Ég fór í sjokk, fór aftur og aftur yfir mínar ferðir þennan dag, en fór bara til Ingu systir og ekkert annað, og aldrei rak ég bílinn niður. En þetta kostaði andvökunótt hjá mér. Á mánudag, kom vinkona Einars, og skutlaði okkur í búðir til að kaupa afmælisgjöf, handa Ingu-systir sem átti 55 ára afmæli þennan dag. Það tókst, flott afmælisgjöf fannst í blómabúðinni. Þá var farið í Haugkaup, og Einar skipaði mér að sýna sér skó, sem mig langaði í, en týmdi ekki að kaupa, ég sýndi honum skóna, hann keypti þá, og gaf mér, yndislegur sonur. Þá hringdi Jón Ingi, hann hafði verlsað sér bíl, fyrir um viku síðan, Toyota Corella, 6 gírar áfram, á gír afturábak, en, hann bauð mér bílinn meðan ég væri í Borgarnesi, því hann fengi ekki bílpróf fyrr en í október, (ef hann nær). Ég þáði boðið, svo vinkona Einars skutlaði mér þangað, og inn settist ég, en vá, hávaðinn þegar ég setti í gang, þá var þetta bíll, með opið púst, töffarabíll, ææææ, ég reyndi að lúsast áfram, og alla þessa viku, fór ég aldrei hærra en í 3-gír. En aftur að þessum mánudegi, okkur Einari og Jóni var boðið í mat til Ingu-systir vegna 55áratímamóts, við Einar mættum á háværri Corollu, og stuttu seinna kom Jón-Ingi, en það var stutt, hann var að fara til Rvik í bíó, en þangað er farið helst 3-4 í viku. Rósa-Hlín, systur-dóttir mín (dóttir Ingu-systir) og hennar kærasti mættu, og við fengum þetta líka meiriháttar góða lambalamb með öllu. Jammí. (vildi að Ronni hefði verið þarna líka, en hefði líklega þurft að draga hitt og þetta undan, áður en hann hefði fengið að éta, með mínu leyfi). Þetta var skemmtilegt kvöld. Daginn eftir, á þriðjudegi, fór ég að heimsækja Þuru vinkonu, kona sem ég hef þekkt síðan 1985, og við höldum alltaf sambandi, alltaf gaman að heimsækja hana. Hún bjargaði lífi mínu um daginn, þegar hún frétti af mínu bakflæði, og sendi mér aloe-vera-drykk, sem hefur reddað öllu. Auðvitað labbaði ég með meiri aloe-vera-drykk frá henni. Þennan dag hringdi Rósa Hlín í mig, hún er eldri dóttir Ingu systir og býr í Borgarnesi, með kærasta sínum, honum Ingó, en jæja, þau buðu mér í kvöldmat, skyr og krækiber. Ég er alltaf til í skyr, en krækiberin mega alveg vera úti í móum fyrir mér, en ég smakkaði, og það endaði með því, að ég fékk mér meiri og meiri krækiber út á skyrið, ekkert smá góð maður. Þau búa í fallegri íbúð, gaman að heimsækja þau. Á miðvikudeginum kom Þura og sótti mig, og fór með mig út í sveit, rétt norður fyrir Borgarnes, til að heimsækja Gurrý vinkonu sem þar býr, æðislegt. Gurrý flutti í sveitina, stuttu eftir að ég flutti úr Nesinu, svo það var langt síðan ég hafði séð hana., þetta var virkilega gaman. Á fimmtudeginum, taldi ég loks í mig kjark, og fór í Sparisjóðinn minn, talaði við minn þjónustufulltrúa, (ég hef verið í SPM síðan 1986, og vil ekki breyta þó ég búi hér) við ræddum mikið, og vonandi allt til hins betra. Þá fór ég að heimsækja mína fyrrverandi tengdaforeldra, en alltaf er gott á milli okkar, ég heimsækji þau, ef ég er á ferðinni, og þau hafa heimsótt okkur Ronna bæði hér og þegar við bjuggum á Króknum. Svo vippaði ég mér yfir götuna, til að kíkja á gamla vinkonu (mágkonu míns fyrrverandi kalls) og þar stoppaði ég í eina 2 tíma, við bara gleymdum okkur í spjalli og hlátri. Um kvöldið eldaði Einar þennan líka meiriháttar-æðislega-fituríka-braggóða-brauðrétt, sem ég át og át, og stundi vel og lengi á eftir. Þá kom föstudagur, og Ronni kom. Hann fór að austan deginum áður, og gisti hjá Sólveigu dóttur sinni og hennar kærasta Atla,og litla Veigari, sem er rétt rúmlega 1 árs, en þau fluttu suður í september, keyptu íbúð í Grafarvogi. Í Borgarnes kom hann stuttu eftir hádegi, mikið gaman, hann varla þekkti sína konu, lét setja í mig ljósar strípur og klippa helling. Sko á föstudagsmorgninum átti hann tíma hjá hjartalækninum, fyrsti tími eftir hjartaþræðinguna, allt kom vel út, nema blóðþrýstingur allt of lár hjá honum, verður að minnka 1 lyf, til að koma því í lag. Einar Trausti skellti sér í Ólafsvík, seinna um daginn, svo við gömlu hjónin vorum bara ein í hans íbúð, elduðum góðan mat, og höfðum það nice. Ætluðum snemma af stað til Reykjavíkur næsta dag, versla smá, og svo heim. En, þá hringdi síminn, og allt breyttist. Við fórum norður daginn eftir. Stoppuðum smátíma á Sauðárkróki hjá Brimdísi og Ronna-yngri, meiriháttar gaman að hitta þau, og svo var brunað á Hauganes, til Steina og ásu. Alltaf jafn gaman og yndislegt að koma og vera þar. Góðar móttökur og góður matur, en ég lét eins og venjulega hjá þeim, fór að sofa. Alveg furðulegt, en í hvert skipti sem ég kem til þeirra, síðustu 4-5 ár, þá syfjar mig, og ég bara verð að fara að sofa, og sef og sef og sef. Greinilegt að ég slaka mikið á hjá þeim. Í gær sunnudag, fórum við af stað, stuttu eftir hádegi inn á Akureyri, til að hitta Kalla, elsta son minn sem þar býr með sinni konu og 3 börnum. YNDISLEGT. Æi þetta var allt of stutt stopp. Þau eignuðust sitt yngsta í mai s.l. og ég hafði rétt aðeins séð hann, þar til nú þegar við komum þangað, gat ekki sleppt honum úr fanginu á mér. En við urðum að rífa okkur upp, og vorum komin hér um um 10-leytið í gærkvöldi. Og í dag, byrjaði ég að passa Kristel Björk, yngsta barnið hennar Helgu dóttir minnar. Þetta verður 3 daga í viku, mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga, um 2 tíma í einu. Fór svo og skúraði í dag á verkstæðinu. Þetta var yndislegt húsmæðraorlof, Einar Trausti, næstelsti sonur minn, sem ég bjó hjá, dekraði við mig, og Jón Ingi, minn yngsti sonur, kom nær daglega, og vildi allt fyrir mig gera. Kalli elsti sonur minn, sem býr á Akureyri, rak endapunktinn á hvað ég á yndisleg börn. Takk elskurnar mínar, ég elska ykkur. Take care. Tilraun.Reyndi að blogga í gærkvöldi, en gafst upp vegna minnar seinu dráttarvélatölvu.
Tilraun 2.
Gefst upp.
August 29 Borgarnes.Á morgun fer ég í Borgarnes, og verð þar í viku.
Ég á svo yndislega systir (hún býr í Borgarnesi) sem borgar fyrir mig flugfar til Reykjavíkur og sækir mig á völlinn, og svo brunum við í Nesið, reyndar með viðkomu hjá hinni systur okkar í Breiðholtinu.
Að fljúga héðan til Rvik, er sko ekki fyrir hvítann mann, ég meina svo dýrt. Ég er öryrki, og fæ því afslátt,en þarf samt að borga bara fyrir aðra leiðina 7.480.-
Ég ætla að vera hjá syni mínum Einari Trausta þessa viku, en hitti daglega yngsta son minn Jón Inga, en hann var að byrja í nýja menntaskólanum í Borgarnesi, og svo auðvitað systir mín og gamlir vinir.
Þetta verður svona húsmæðraorlof, einn góður vinur minn sagði í commenti um daginn, að ég greinilega þyrfti þess, og rétt er það, allavega þetta verður tilbreyting og gaman að vera í kringum syni mína.
Ég skil hundana mína eftir hér heima (ég meina Ronna og hundinn okkar Baltó), en þeir koma svo til Rvik föstudaginn 7.sept. en þá á Ronni tíma hjá hjartalækninum sínum, og þá annaðhvort koma þeir í Borgarnes að sækja mig, eða ég hitti þá í bænum, allt eftir því hvert við stefnum þá helgi.
Ég hitti gamlann og góðann irkara í dag,Zofuz, og er þetta í annað skiptið sem hann kemur á Höfn í sumar, um verslunarmannahelgina gisti hér hjá okkur gamall irkari, hann Dontgo og var mikið gaman að fá hann í heimsókn.
Æi já, Ronni verður að taka að sér köttinn sem ég var búin að lofa að sjá um, úffff og hann sem hatar ketti, mest hrædd um að hann bara skjóti hann, en nei, hann stendur sína vakt.
Kíkti á Swídí vinkonu í dag, til að tilkynna henni mína ferðaáætlun og einnig til að gera kannski góð kaup hjá henni, vegna jólagjafa. En hún rekur ódýra hannyrðaverslun, þar sem hægt er að gera falleg en ódýr innkaup. Var sko í gær að skrifa á blað barnabörnin, og þau verða orðin 16 um næstu jól. Svo við ætlum að hittast í fyrramálið og plana ódýr jól.
Hef pikkað þetta blogg mitt á mína tölvu, argggggg og asssgotanshelv.......seinagangur, en gott að sjá, að talva er seinni að hugsa en ég
Take care.
August 27 Enn og aftur mánudagur.Sé núna að ég er farin að blogga á vikufresti, usssbara meiri letin.
Heilsan er allt önnur, góð vinkona sendi mér í siðustu viku aloe vera drykk, sem virkar svona assgoti vel, hef sofið alveg síðustu 3 nætur, HÚRRA.
Þetta er sko allt annað líf
Ronni hefur verið duglegur á gæsinni, 8 stykki komin í hús. Baltó litli hefur farið með honum í síðustu 3 skiptin, og stendur sig mjög vel.
Við vorum búin að plana smá-sumarfrí næstu helgi, en Ronni átti að mæta hjá hjartalækni 3.sept. svo við ætluðum í Borgarnes strax næsta föstudag, og Ronni ætlaði að prufa golfmót þar á laugardeginum. EN, hringt var frá lækninum í morgun, og tilkynnt að læknirinn yrði í fríi svo vinsamlegast mæta föstudaginn 7. sept. Svo þar fór það frí.
Í síðustu viku tók ég að mér að passa kött, Jón Haukur bróðir Ronna og Sessa hans kona, skelltu sér til Spánar, settu hundana á hótel, en Gosi (kötturinn) er heima við. Ég kíki á hann einu sinni á dag, og hann er alltaf jafn hræddur við mig, þegar ég birtist, hleypur út um gluggann. Sessa lánaði mér bílinn sinn á meðan, svo núna hef ég minn eigin frúarbíl að rúnta á, en Ronni rúntar um á okkar Ford, sem gengur eins og klukka, fyrir utan það að leka vatni, vonum að það sé ekki mikil viðgerð.
Síðasta fimmtudag kom svo hundurinn hans Hauks ( tík sem heitir Birta) hingað í pössun. Baltó og henni kom vel saman, mikill hamagangur, en hún fór svo heim til sín í dag.
Ég kláraði jólakortin um helgina, svo núna bíða þau bara eftir því að ég muni og nenni að skrifa á þau.
Það er ekki gaman að heyra um vini sem keyra hér framhjá, án þess að kíkja við.
Takk fyrir commentin elskurnar mínar.
Take care.
August 20 MánudagurFer nú alveg að gefast upp á þessu bloggi mínu, verð alltaf að stelast í Ronna tölvu, til að geta skrifað, arggggg.
Fyrir 2 dögum byrjaði ég að búa til jólakort, já jólakort, hef alltaf verið á síðustu stundu við þetta, en hef lítið sofið síðustu viku, útaf þessu bakflæði, svo ég druslast bara um, eins og draugur, og get lítið annað gert, en dúllast eitthvað.
Mér var boðin vinna í síðustu viku, leysa af í búð, nokkra tíma á dag, í smátíma, en ég varð að neita. Er eins og allir vita, mjög gleymin og utan við mig, en er helmingi verri þessa dagana, mig vantar svefn. Hefði örugglega gert einhverja gloríu á bak við búðarborðið, gefið vörurnar eða selt þær á okurverði, sofnað ofaní peningakassann, eða guð má vita hvað.
Nei, betra að loka sig bara inni, og gera sig að fífli heima hjá sér.
Ronni var að keppa á golfmóti síðasta laugardag, lenti í 3 sæti. Nokkur fyrirtæki hér í bæ, gáfu verðlaun, og minn kall þurfti endilega að fá verðlaun frá því fyrirtæki, sem hann vinnur hjá, asnalegt.
Og í morgun byrjaði gæsaveiðin, og minn farinn héðan kl 4 í nótt, kom heim með 1 stykki feita gæs. Hún hangir á hreindýrshorninu sem er á veggnum við útidyrnar, og Baltó er svo hrifinn, að hann neitar að koma inn, situr bara úti á tröppum og starir á fuglinn.
Ef allt gengur upp, fer vélin ofaní Fordinn í dag, og þá erum við loksins komin aftur á okkar eigin bíl. Erum búin að hafa bílinn hans tengdapabba í láni, síðustu 3 mánuði.
Take care.
August 14 Talva og talva.Í gær fékk ég lánaðann turn, með öflugri örgjafa, en ég hef verið með síðasta mánuð (síðan talvan mín dó). Ronni skellti honum upp, og ég svaka ánægð með kubbaleikinn minn, því núna sprungu þeir með látum, en ekki það hægt, að þú gast talið brotin.
Áðan ætlaði ég svo að blogga við mína tölvu, skrifaði og skrifaði, en ekkert kom fram, fyrr en eftir nærri 3 mín. Hvað er í gangi? Gafst upp, og sit núna við Ronna-tölvu, enda er hann í golfi.
Hvar ertu norðlendingasveitalubbinn minn?
Ronni fékk loks hjálp við Fordinn á sunnudag, pannan komin úr, soðið var í hana í morgun, svo vonandi verður hægt að púsla bílnum saman á næstu dögum.
Er orðin hundleið á minni heilsu, ef ekki er þetta að, þá er eitthvað annað, trúi ekki að ellin ætli að vera svona leiðinleg, ég verð að hafa heilsu í, að vera erfið á elliheimilinu (drekka sherry og reykja í öllum skúmaskotum).
Í dag á Jón Ágúst afmæli og einnig stjúpdóttir mín ( fyrrverandi ) og óska ég þeim til hamingju.
Hef miklar áhyggjur af dóttur minni, hennar maður slasaðist fyrir 3 mán. og hefur ekkert getað unnið síðan. Þau eru með 4 ung börn. Hún fékk vinnu í síðasta mánuði við heimilshjálp hér í bæ, en þarf svo líka að hugsa um heimilið, börnin og manninn sinn, þetta er of mikið álag.
Hef líka miklar áhyggjur af tengdasyninum, því hann hefur alltaf verið duglegur í vinnu, og ég veit hvað þetta hefur mikil áhrif á hann, að þurfa að vera heima, og geta ekki neitt.
Hef áhyggjur af hinu og þessu, en það er ekkert nýtt.
Er orðin gömul, en get ekki enn skilið, af hverju fólk er að búa til leiðindi.
Ég er ekki að segja, að allir þurfi að hafa sömu skoðun á hlutunum, en maður á þá að virða skoðanir annara. Sem betur fer, erum við hjónin það þroskuð, að við getum haft misjafnar skoðanir á hlutum, án þess að allt fari í hund og kött. En margt fólk, sérstaklega unga fólkið, sér ekkert nema sjálfan sig og sínar skoðanir.
Eigum við gömlu hjónin, að leggja á okkur erfiði, bara til að unga fólkið sé ánægt?
Okkur finnst báðum leiðinlegt að biðja um hjálp, við reynum allt áður. (síðasta helgi er gott dæmi um það).
Bounty litla virðist líða eins og kóngi í Borgarnesi, og er ég ánægð með það, veit að það er hugsað vel um hann, en ég sakna hans oft.
Það sárasta við það, að hafa dýr á heimilinu, er að þurfa losa sig við þau.
Take care.
August 11 Laugardagur.Jæja, er að hressast. Á föstudag, fyrir viku, ákvað læknirinn að taka mig af blóðþrýstingslyfjunum mínum, og setja mig á önnur, ef þau væru að valda þessum magabólgum. Vá, þrystingurinn rauk strax upp, lægri mörkin héngu í 120. Á mánudag hringdi ég í læknirinn og sagði frá, og var mér skipað strax á gömlu lyfin, og loks í gær varð þrýstingur eðlilegur. Helvítis hausverkur, skjálfti og þreyta fylgja svona háþrýstingi. Er miklu betri af bakflæðinu, verð víst að forðast allar áhyggjur og stress. Hehehehe, fyndið. Ekki hægt nú til dags, en ég reyni.
Átti afmæli síðasta þriðjudag, og fékk fullt af gjöfum, yndislegt að eiga góða vini og nokkra góða fjölskyldumeðlimi.
Talandi um fjölskyldumeðlimi, þá er sárt hvað sumir næst okkur, hugsa bara um sig og sína, er alveg sama um allt og aðra. Nema þegar þeim vantar aðstoð, þá eigum við að hlaupa strax til. ÓÞOLANDI.
Við erum enn bíllaus, annars værum við núna á Fiskideginum mikla á Dalvík. Ronni hjólar í vinnuna og í búðina, En Haukur sonur hans lánaði honum hjól um daginn.
Ég er ekki dugleg að labba, því það kostar verki, gigtin komin í bakið, og kemst ekki nema 300-400 m. þá er ég stopp, vegna verkja, sem ergja mann, það sem eftir er dags.
En í dag, fauk svo í mig, að ég arkaði út.
Ronni fór í morgun að gera við Fordinn, átti von á hjálp, sem ekki kom. Ég arkaði því niður á netaverkstæði, og reyndi að aðstoða hann, eins og ég gat. Var líka rólegri að vera hjá honum, því hann má ekkert reyna á sig, án þess að hjartað láti í sér heyra.
Það sýður á mér.
August 04 Hitt og þetta.Á miðvikudag var hringt frá Landspítalanum og ég boðuð í magaspeglun morgunin eftir. Við brunuðum til Rvik seinnipartinn þegar Ronni var búinn að vinna. Kl. 11 á fimmtudagsmorgun var ég mætt á spítalann, fékk róandi sprautu og vissi ekki af mér, fyrr en 2 tímum seinna. Mikið var gott að sofa.
Í ljós komu magabólgur, og á ég bara að halda áfram að éta þessi magalyf sem ég hef verið á síðasta mánuð. En einnig var skipt um blóðþrýstingslyf, því það gæti verið að þau væru að orsaka þessar magabólgur. Svo nú bara bíður maður og vonar, að þetta lagist.
Er ekki eins kvalin og ég hef verið síðustu vikur, bara smáverkir, sem tekur ekki að kvarta yfir.
En þegar við fórum til Rvik, tókum við Bounty með. Jón Ingi og pabbi hans hittu okkur svo í bænum, og tóku hann,svo núna á Bonty heima í Borgarnesi. Allt gengur vel.
Við vorum svo komin heim, á fimmtudagskvöldinu, Baltó var í pössun hér úti í bæ.
Þessa helgi er Landsmót UMFÍ hér á Höfn. Veðrið búið að haga sér vel, sólarglenna, hiti og smárigning. Mikill mannfjöldi, umferðartafir og löng bið í búðum.
Ronni er búinn að vera að vinna sem sjálfboðaliði, á íþróttavellinum í gær, og svo á golfvellinum í dag. En á morgun er golfmót, sem hann tekur þátt í.
Take care.
July 30 Tölvu og maga-vesen.Talvan mín dó fyrir nokkru síðan, fékk loks nýja-gamla-tölvu, sem allavega gengur, en gengur, eins og traktor, því örgjafinn er svo lítill. Reyndi að blogga í minni tölvu áðan, en það gekk ekki, skrifaði 2-3 orð, og varð að bíða í 1 mín. eftir að þau komu fram. Svo núna sit ég í Ronna-tölvu og blogga. En góður vinur hér á Höfn, ætlar að redda okkur stærri örgjafa.
Talandi um góða vini, þá komst ég að því, síðasta föstudag, hvað góðir vinir eru.
Við áttum erfitt, góð vinkona birtist, eins og engill, og reddaði málunum. Ég grét.
Hef jú áður grátið, þegar góðir vinir bregðast við.
Steini, Anna og Helga, þið eruð vinir í raun.
Og jú, okkar synir, Ronni-yngri og Kalli, brugðust skjótt við. Takk elskurnar.
En síðustu 2 vikur hafa verið hryllilegar fyrir mig, vegna þess að bakflæðið tók sig upp, þrátt fyrir sterk lyf. Hef lítið sofið, og kvalirnar hafa markað sín spor.
En í dag fékk ég loks tíma hjá lækni, sem fór strax í það að faxa beiðni fyrir mig til Reykjavíkur.
Svo núna bíð ég bara eftir magaspeglun, til að sjá hvað er í gangi, og hvað sé hægt að gera.
Fór í magaspeglun síðast 1998, og þá leit allt flott út.
Krossa putta núna.
En mikið assgoti er ég orðin þreytt.
Ronni stendur sig frábærlega í sínu reykbindindi, hann hefur ekkert reykt síðan hann fór í hjartaþræðinguna, (fyrir utan 4-5 smóka, stuttu á eftir).
En ég, Neeeeiiiii, ég reyki enn, og drusla mér og öðrum reykgestum út á tröppur. En ef vont er veður, þá læt ég mig hverfa í bílskúrinn.
Baltó, okkar nýji hundur stendur sig vel, er mjög hlýðinn, og er að taka okkur, smátt og smátt.
Hann vil meiraaðsegja kúra og knúsast, öðru hvoru, mér til mikilliar ánægju.
Take care.
July 19 Jæja.Jæja, langt síðan ég hef bloggað, en það er svo sem ekkert nýtt.
Á mánudag í síðustu viku (fyrir 10 dögum) dó talvan mín, hún var búin að haga sér hálfeinkennilega í nokkra daga áður, slökkva á sér sí og æ, svo núna sit ég við Ronna tölvu, stelst í hana, eins oft og ég get.
Daginn eftir að talvan mín dó, fengum við lykilinn af bústaðnum hans tengdapabba uppi í Lóni, og ég vildi sko nýta hann, fékk Ronna til að skutla mér þangað á þriðjudagskvöldi, þegar hann var búinn að vinna, og naut mín þar, alein, fram á föstudag, þegar vinnuvikan hans Ronna var búinn, og hann kom uppeftir. Reyndar skaust hann aðeins uppeftir á miðvikudeginum, til að koma Bounty til mín, en mikið hef ég verið leiðinleg, því daginn eftir, fimmtudag, hvarf Bounty, og loksins eftir 7 tíma, frétti ég loks af honum, þá var hann kominn heim til Ronna á Höfn.
NEI, hann labbaði ekki alla leiðina niður á Höfn, hann fékk bílfar.
Hann hafði fundist langt inni í Lóni, af hjónum frá Höfn, sem vissu ekkert hver ætti hann. Þau tóku hann niðureftir, og af tilviljun, var sonur þeirra á msn við dóttur hjóna sem þekkja okkur, og hún kannaðist við lýsinguna, svo Bounty komst til skila.
Sko, ég var algerlega símasambandslaus í bústaðnum, þurfti að labba yfir veginn og leita og leita að símasambandi, og standa svo og hreyfa mig ekkert,ef það náðist, þorði varla að anda. Þetta var æðislega gott, að fá frið fyrir umheiminum, nema þegar ég vildi, en frekar slæmt þegar Bounty týndist, hefði viljað frétta af honum fyrr. Var búin að leita og leita að honum, og garga mig hása, þarna í fjöllunum.
Jæja, en loksins þegar ég náði símasambandi við Ronna á fimmtudagskvöldinu, og hann sagði mér að Bounty væri kominn heim, þá sagði hann mér líka aðrar góðar fréttir. Við værum líklega komin með annan hund. HA? Jú, hann hafði séð á netinu, þegar hann kom heim úr vinnu, auglýstann hund, gefins. Þetta væri 7 mánaða, blandaður, Siberiskan Husky 50% og Bordie Colly 50%. Ég strax JÁ, því ég elska Bordie Collie. Ok, Ronni sagðist þá ætla að hringja, og segja að við værum til.....ég lallaði inn í bústað, og út aftur, um klukkutíma seinna í símasamband.
Þetta gekk, margir höfðu hringt og margir höfðu meira að segja komið, og kíkt á hvolpinn. En Ronni hafði verið sá fyrsti sem hringdi, svo við fengum hann.
En þá var það hausverkurinn að fá hann hingað austur. Að senda hann með flugi, kostaði 6.500 kr. það gekk ekki upp. En þennan sama föstudag, fóru þau suður Jón og Dagga, og buðust til að taka hann, en þau ætluðu svo norður á Skagaströnd og svo Sauðárkrók, og koma hingað aftur á sunnudag. Ég sagði, nei takk. Gat ekki hugsað mér, að láta hvolpinn ferðast hringinn í kringum landið, áður en hann kæmi hingað. En á föstudagsmorgni, hringdi Ronni í flugfélagið Ernir, sem er með áætlunarflug hingað austur, og gat samið við þá, það kostaði okkur 1000 kr að fá hann hingað.
Um 6-leytið á föstudag, stóð ég fyrir utan sumarbústaðinn og beið. Loksins kom bíllinn. Og út komu, Ronni, Bounty (strokuhundur) og nýji hundurinn. VÁ, hvað hann er fallegur! Hann heitir Balto (Baltó), eftir frægum sleðahundi.
Hann er svo hlýðinn, og öðru hvoru vill hann kela (ég sakna keluatlota-Kvists ennþá). En honum fylgdi, stórt ferðabúr, og annað stórt búr til að sofa í, 2 taumar, og svo líka keðja til að festa hann í, úti í garði, 2 matardallar fylgdu líka.
Jæja, á laugardagsmorgni, vöknuðum við snemma, því Ronni var búinn að skrá sig á golfmót, svo hann var farinn um áttaleytið. Hann kom aftur kl 3 um daginn. Baltó var mjög órólegur, en sætti sig við það, að vera bundinn úti. Daginn eftir skeði það sama, Ronni horfinn á golfmót, Baltó úti.
Ronni kom svo um 3-leytið, við þrifum bústaðinn, og heim.
Baltó varð órólegri, en á þessum dögum, síðan, hefur allt breyst til batnaðar
Ég sakna Kvists ennþá svo mikið, við höfðum átt hann í 7 mánuði.
Ennþá, get ég ekki alveg opnað mig fyrir Baltó, ég er hrædd.
Á næstu helgi, á litla-stóra-barnið mitt afmæli. Helga, elsta barnið mitt, verður þrítug.
(já ég veit, ég er orðin hundgömul).
Take care.
July 07 Kvistur.Hann Kvistur minn er farinn.
Í hádeginu í gær, strauk hann eini sinni enn. Ronni eyddi öllum sínum matartíma í að elta hann, en hann gengdi engu, frekar en vanalega. Loksins náðist hann, og þá kom Ronni hér heim, náði í sína byssu, og skaut hann.
Við vorum búin að eiga hann í 7 mánuði, og mikið var hann blíður og kelinn, en því miður var hann ofvirkur og strauk við hvert tækifæri.
Við erum búin að jarða hann hér úti í garði, við hliðina á Ponsu.
Ég grét mikið í gær og ég græt enn.
Húsið er svo tómlegt.
Ég sakna hans svo mikið.
July 01 HumarhátíðÞá er Humarhátíðin liðin, í þetta sinn. Ósköp róleg og góð helgi.
Sólveig dóttir Ronna kom með litla Veigar sinn (hann verður 1árs í ágúst) Ronni yngri kom með henni ásamt vini sínum Robba. Mínir strákar vildu koma,eins og vanalega, en vinnan kallaði. Og eins var það með Brimdísi, yngstu hans Ronna, Skaffó-mafían vildi ekki gefa henni frí.
En mikið var gaman að fá að kynnast Veigari litla.
Annars gengur lífið sinn vana gang, við gömlu hjónin hressumst bæði, af okkar aldurs-sjúkdómi.
Heyrðum frá okkar besta vini í fyrrakvöld, hann er að sleikja sólina ásamt sinni fjölskyldu, vonum að þau hafi það nice
Við misstum af meiriháttar afmælisveislu þessa helgi, sem okkur var boðið í, en það er svona, Humarhátíðin og okkar fjölskylda gengur fyrir.
En höggormur er kominn í Paradís.
Take care.
June 15 FöstudagurJæja, þessi vika hefur verið ágæt, hef getað sofið meira, rumska bara öðruhvoru við smá-verki, en í gærmorgun fór að bera á verri verkjum og gærkvöldið, síðasta nótt og í morgun, var hryllingur.
Andskoti helvíti er þetta vont. Er alltaf best frá hádegi og til svona 9-10 á kvöldin.
Ronni hefur unnið alla vikuna, var alveg útkeyrður eftir fyrstu 2 dagana, sofnaður um 8-leytið á kvöldin, og það í rúminu, ekki stólnum. En smá saman eykst þrekið.
Hann stendur sig alveg hundrað prósent í reykbindinu, ég er stolt af honum.
Á morgun fáum við 2 hunda í pössun til 3.júli, annar er Flatcolderredriver (gljásækir), aðeins stærri en Kvistur okkar, og heitir hann Kolur, og svo er það hún Mjöll, puddletík, sem við höfum nú passað nokkrum sinnum. Þeim Kvist og Kol kemur vel saman, og Bounty og Mjöll kemur vel saman, en á milli þeirra stóru og litlu, ríkir hatur, úffffff, mikið voffvofff.
Take care.
June 11 MánudagurJæja, þessi nýju lyf eru aðeins farin að slá á, hef allavega getið sofið klukkutíma í einu, áður en ég vakna upp við verkina, og það þakka ég fyrir.
Er að læra hvaða matur fer illa í mig, og það er, tómatar, bananar, paprikur, og cítrusávextir, og sterkur matur, og svo blessað kaffið, annars virðist engu skipta, hvað ég set ofaní mig, þessa dagana, en allavega finn að þetta sem ég taldi upp, eykur vandann.
Ronni byrjaði að vinna í morgun, og vona ég að það gangi vel.
Hann fékk sláttuorf lánað á laugardaginn, og sló garðinn, sem ekki veitti sko af, en varð ansi þreyttur og lúinn eftir það.
Elsku Svana, vona að barnabarnið fái lækningu sem fyrst, hryllilegt til þess að vita, að smábörn kveljist svona.
Fékk leiðinlegar fréttir í gær, ég táraðist, vona að allt gangi vel.
Take care.
June 08 FöstudagurFór til læknis í dag, loksins, en hér þarf maður að bíða í nokkra daga eða viku eftir að komast að. Eilíf læknaskipti hér, og allt yfirleitt ungir doksar.
En allavega, lenti á ágætri konu, ekki leist henni vel á mig, jók lyfin um helming, svo sjáum við til.
Þetta ,, við skulum sjá til,, heyrir maður oft hjá læknum, og verður maður bara að sjá til, hvort þetta að sjá til, dugar
Allavega, ef ég hefði haft byssu við hliðina á mér síðustu nótt, þá hefði ég skotið mig, þvílíkar voru kvalirnar.
Það sem að mér er, er bakflæði, jú maður hefur nú fengið smá-bakflæði á meðgöngum, en þetta helvíti, eins og síðasta vika hefur verið, hef ég ekki upplifað. Bakflæði er, þegar magasýrurnar komast upp úr vélindanu, og streyma um allt, og þessar magasýrur eru sko sterkar. Þetta er svona álíka og ef við myndum ýmynda okkur að drekka spritt ofaní í opið sár. Kvalirnar eru svo miklar, ég dofna í báðum handleggjum, næ ekki andanum og því hálf missi meðvitund, verð máttlaus, lengi eftir hvert kast, svo eftir svona 10-15 köst á sólarhring, sér hver maður, að ekki er gaman að lifa.
Ég kvíði næsta sólarhring, eða þangað til þessi sterkari lyf fara að verka, ef þau þá verka, annars er aðgerð framundan, og því nenni ég sko ekki, og hana nú.
Gleymdi að segja í síðasta bloggi, að Kalli og Magga, ásamt börnum, skutust til Rvik, meðan við vorum í bænum, svo þá loksins fékk ég að sjá mitt nýjasta barnabarn, yndislegt, ég knúsaði hann í botn. Nafna mín skrifaði mér fallegt bréf, sem ég geymi vel.
Þegar svona veikindi skella á manni, eins og með Ronna, þá kom í ljós hverjir voru vinir og hverjir ekki. Og þá sást líka hvaða nánustu ættingjar létu sig þetta skipta máli og hverjir ekki. Þetta var svona hreinsun. Alltaf gott að vita hvar við stöndum.
Take care.
June 07 VikubloggJæja, suður fórum við, og Ronni inn á spítala, áttum bara von á hjartaþræðingu og út svo, en nei, víkka þurfti út kransæð hjá honum, net sett á tveimur stöðum, svo ekki mátti tæpara standa, allt gekk vel, og átti hann að útskrifast daginn eftir. En þegar ég mætti morgunin eftir, þá höfðu komið upp vandamál um nóttina, lítil hliðaræð út frá þessari kransæð hafði lokast, svo fylgjast þurfti vel með honum næsta sólarhring. Þetta hafðist, og út komst hann um 2-leytið á föstudag. Hann þurfti að taka leigubíl, heim til Sillu systir, þar sem ég var til húsa, þessa daga sem hann var inni, því ég komst ekki útúr húsi vegna veikinda. Við vorum bæði aðeins hressari á laugardeginum, og ákváðum að skella okkur hingað austur, vorum eina 7 tíma hingað heim, stoppuðum oft á leiðinni, og reyndum að skiptast á að keyra. Gömlu hjónin.
Ronni hefur verið ágætlega hress þessa viku, svo vonandi kemst hann í vinnu, eftir helgina. En hér eftir verður hann alltaf að ganga með sprengipillur á sér, just in case, og mikið lyfjamagn þarf hann að taka næstu mánuði.
En þessi vika hefur verið helvíti fyrir mig, vegna minna veikinda, en fékk tíma hjá lækni á morgun, svo vona hið besta.
Ronni hætti að reykja sama dag og hann fór í aðgerðina, og hefur staðið sig hundrað prósent, fyrir utan eitt tilvik í gærkvöldi, en þá fauk snögglega í minn mann, og hann æddi út og reykti hálfa sígó.
Ég hef minnkað mínar reykingar úr 1 og 1/2 pakka á dag niður í 1/2 pakka á dag. Ekki er reykt á heimili Sillu systir, svo meðan ég var þar, þurfti ég út í garð, og þegar í ljós komu þessu alvarlegu veikindi með Ronna, og hann ákvað að hætta að reykja, ákvað ég að hér eftir mætti ekki reykja á okkar heimili, svo síðan við komum heim, þá annaðhvort húki ég út á tröppum eða niðri í bílskúr, til að púa, og þeir gestir sem hingað koma og reykja eru reknir útá tröppur.
Kvistur var hér heima, meðan við vorum fyrir sunnan, og var litið til hans 2-3 á dag. Mikið hefur honum leiðst, því þegar við komum heim, var hann búinn að eyðileggja, 2 stofupúða, gönguskó og strigaskó af mér, og ný stígvél af Ronna.
Bounty var í pössun hjá vinafólki okkar hér úti í bæ, þar sem 2 hundar eru fyrir, og var lagður í einelti af öðrum hundinum, er hann því hálfslasaður og mjög taugaveiklaður eftir þá dvöl. Þeir hljóta nú að jafna sig, greyin.
Ronna var skipað af læknum, að fara í göngutúr á hverjum degi, og höfum við verið dugleg við það, síðan við komum heim, við mikinn fögnuð hundanna.
Minn háþrýstingur fór niður í normal, sama dag og Ronni fór í aðgerðina, og hefur haldið sig þar síðan. Skrýtið, en líklega hef ég bara verið orðin svona assgoti stressuð.
Síðasta mánudag, tók ég að mér að passa 2 ketti og 4 kettlinga, fyrir stúlku úti í bæ, í vikutíma, það hefur gengið vel, en ekki eru mínir hundar hrifnir af lyktinni af mér, þegar ég kem heim frá mjámjá.
Take care.
|
|
|